|
Starfsdagur og Vetrarleyfi í Snælandsskóla |
|
Kæru nemendur og starfsfólk Snælandsskóla. Starfsdagur verður í Snælandsskóla miðvikudaginn 22. febrúar. Vetrarleyfi verður í Snælandsskóla fimmtudaginn 23. og föstudaginn 24. febrúar. Öll kennsla fellur niður þessa daga, en Dægradvölin verður opin miðvikudaginn 22. febrúar. Minnt er á að foreldrar þurfa að nesta börnin með morgunhressingu og hádegismat, en síðdegiskaffi er á vegum Dægradvalarinnar fyrir þá sem í það eru skráðir. Kennsla hefst á ný samkvæmt stundarskrá mánudaginn 27. febrúar. Sjáumst hress og kát eftir fríið.
|
|
|
Meistaramót Snælandsskóla í skák 2011-2012 |
|
Meistaramót Snælandsskóla í skák 2011-2012 fór fram á föstudag 17. 2. í matsalnum skólans. Eftir mjög spennandi keppni urðu 2 keppendur, þeir Örvar og Hávar í 9.ÁB í 1-2 sæti með 4,5 vinninga og þurfti að telja aukastig. Fyrstu stigin voru jöfn, 13,5 stig hjá báðum keppendum en á öðrum aukastigum vann Örvar Svavarsson í 9. ÁB og varð Skólameistari Snælandsskóla annað ár í röð.
|
|
Nánar...
|
|
Nemendur í 4.bekk Snælandsskóla settu upp söngleikinn Ávaxtakarfan. Sýningin tókst mjög vel og var samnemendum boðið á sýningar auk aðstandenda krakkanna og elstu leikskólabörnum af leikskólunum Álfatún, Furugrund og Grænanatún. Allir voru ánægðir og skemmtu sér mjög vel.
|
|
Nánar...
|
|
|
Meistaramót Snælandsskóla í skák 2011-2012 |
|
Meistaramót Snælandsskóla í skák 2011-2012 fer fram föstudaginn 17. febrúar kl. 10:00 Lenka Ptácníková skákmeistari er mótstjóri. |
|
Eins og undanfarin ár tekur Snælandsskóli þátt í Lífshlaupinu. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa.
|
|
Nánar...
|
|
|
|
|
|
|
Síða 1 af 24 |