Grænfáni
Snælandsskóli -skóli á grænni grein
Snælandsskóli er í hópi þeirra skóla sem flagga Grænfánanum og er þar með skóli á grænni grein. Fulltrúar frá stýrihóp Grænfánans og Landverndar komu og veittu skólanum fánann í maí 2004. Fáninn er veittur til tveggja ára í senn. Mikil hátíð var í skólanum af þessu tilefni. Sýning var á þeim verkum nemenda sem tengjast Grænfánanum og verkstæðisvinna var í gangi. Þar fengu nemendur og gestir að vinna að hinum ýmsu verkefnum.
Grænfáninn er viðurkenning fyrir vinnu skólans að umhverfismálum. Skólar á grænni grein er alþjóðlegt verkefni til að auka umhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum, eins og segir á heimasíðu Lanndverndar: http://landvernd.is. Þar er hægt að lesa nánar um Grænfánann, m.a. um skrefin 7, sem skólar þurfa að stíga til þess að fá fánann. Hér á þessarri síðu má sjá þær áherslur sem Snælandsskóli hefur kosið að fara í verkefninu.
Umhverfisráð
Í skólanum er umhverfisráð. Í ráðinu eru fulltrúar kennara, annars starfsfólks og foreldra. Ennfremur eru nemendur úr öllum bekkjum miðstigs og unglingastigs. Nemendur í ráðinu hafa búið til umhverfisreglur sem eru í hverri stofu. Þeir fylgjast með að þeim sé framfylgt.
Umhverfissáttmáli skólans
Snælandsskóli vill að nemendur
...hafi jákvætt viðhorf til alls lífs og umhverfis
...fái þekkingu á umhverfi sínu og ferlum náttúrunnar
...verði hæfir til að leita lausna á þeim vandamálum sem steðja að náttúrunni vegna umsvifa mannsins
...fái tækifæri til að vinna að verkefnum sem stuðla að bættu umhverfi
Markmið 2010 - 2012
- Að nýta nýju útikennsluaðstöðuna skipulega i kennslu allra árganga og sérgreina.
- Að kenna nemendum hugtakið sjálfbær þróun, hvað það þýðir og hverju það skiptir fyrir heiminn og vinna verkefni því tengd.
- Að kynna nemendum á miðstigi og í unglingadeild sérstaklega loftlagsbreytingar og vinna verkefni tengd því.
- Að hefja samvinnu við leikskóla hverfisins sem eru einnig á grænni grein.
- Að auka nemendalýðræði og kynna enn frekar lýðræðisleg vinnubrögð.
Markmið 2008 -2010
- Að bekkjarfundir verði teknir undir umhverfismál a.m.k. 1x á önn ( og skrifuð fundargerð).
- Að auka hlutfall þeirra sem ganga eða hjóla í skólann.
- Að lögð verði meiri áhersla á útikennslu.
- Að einn dagur á ári verði Umhverfis- og heilsudagur Snælandsskóla.
- Að fræða nemendur um vinnuvernd og vinnuvistfræði.
Markmið 2006- 2008
- Að keyptar séu vörur með umhverfismerki s.s. Svansmerktar vörur. Upplýsingar um umhverfismerki er hægt að fá heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is, undir liðnum umhverfisstjórnun.
- Að gerð verði útikennsluáætlun fyrir skólann.
- Að gefa gömlum hlutum nýtt líf ( gerðir upp gamlir hlutir s.s. hjól, húsmunir og fatnaður). Með þessu er aukin virðing fyrir verðmætum.
- Umhverfisþemu ferði fest í sessi á yngsta stigi
- Að upplýsingar til heimila og annað séu sendar í tölvupósti eins og frekast er kostur. Þannig sé sparnaður á pappír og prenti.
Í upphafi árið 2004 settum við okkur 5 markmið til að vinna eftir. Þau voru:
Að minnka úrgang og að flokka sorp.
Við flokkum pappír, spilliefni, lífrænan úrgang, kerti, gosumbúðir, ál, gler, efni og garn.
Að endurvinna
.
Við endurvinnum m.a. úr pappír, efni og kertum.
Að græða umhverfið.
Við gróðursetjum á skólalóð og í Fossvogsdal og ræktum í skólagörðum.
Að minnka mengun.
Við hvetjum fólk til að ganga í skólann og höfum bílana ekki í lausagangi..
Að bæta samfélag manna.
Við hjálpumst að og hjálpum öðrum.
Við kennum eldri borgurum á tölvur og við prjónum teppi fyrir ungbörn í Afríku.
Nokkur verkefni sem unnin hafa verið í tengslum við Grænfánann:
- Saumaðar eru töskur og pennaveski úr gömlum gallabuxum
- Endurvinnsa úr pappír. M.a. eru búnar til skálar úr æfingarblöðum fyrir samræmd próf í 4. bekk.
- Yngsta stig: Búin eru til bókakassar úr kössum undan morgunkorni
- Yngsta stig: Búin til pennabox úr niðursuðudósum.
- Í mest allt föndur er notað verðlaust efni.
- 8.bekkur gerir kannanir um samgöngumáta og við reynum að minnka mengun.
- Við ræktum í beðunum á skólalóðinni.
- Við erum með reit í skólagörðum. 3. bekkur setur við niður að vori og 4. bekkur tekur upp að hausti. Afurðirnar eru nýttar í heimilisfræði.
- Við prjónum teppi úr gömlu garni. Teppin eru send til ungbarna í Afríku. Krakkar á miðstigi hafa umsjón með þessu verkefni.
- 9. bekkur kennir öldruðum á tölvur.
- Við höldum áfram með þessi verkefni og fleiri verkefni. Við munum enn fremur bæta við verkefnum sem stuðla að betra samfélagi og betra umhverfi.